Henna litun og plokkun – Algengar spurningar
Henna litun er náttúruleg litun sem litar bæði augabrúnahárin og húðina undir þeim. Þetta gefur fyllra og meira mótað útlit, svipað og létt „makeup effect“ án daglegrar fyrirhafnar. Liturinn er gerður úr Henna plöntunni og inniheldur allskonar andoxunarefni og vítamín, sem næra hárin og húðina meðan hann situr á. Liturinn myndar lag utanum og ofaná húðinni, í staðinn fyrir að fara inní hárin, eins og venjulegur litur gerir, sem raskar hárin.
Hefðbundin litun er hannað til að lita aðeins hárin, en Henna litar bæði hárin og húðina. Þess vegna gefur Henna meiri fyllingu og skýrari lögun – fullkomið ef þú vilt þéttari útlit og lengri endingu. Henna liturinn myndar lag utanum og ofaná húðinni, í staðinn fyrir að fara inní hárin, eins og venjulegur litur gerir.
Framleiðendur gefa það út að Henna á að endast í 4–6 vikur á hárunum og um 7-14 daga á húðinni, fer eftir húðgerð og eftirmeðferð.
Já, liturinn er sérblandaður út frá húðtón, háralit og því útliti sem þú vilt ná – hvort sem þú vilt mjög náttúrulegt eða meira skilgreint look.
Mælt er með að forðast vatn, svita og olíur fyrstu 24 klukkustundirnar til að tryggja að liturinn festist sem best á húðinni.
Meðferðin tekur um 30 mínútur og felur í sér mótun, plokkun og litun fyrir fullkomna heildarniðurstöðu.
Flestir koma á 4–6 vikna fresti til að viðhalda fallegri lögun og lit.
Henna hentar sérstaklega vel þeim sem vilja fyllri augabrúnir, betri lögun eða „makeup look“ án þess að þurfa að mála þær daglega.
0 comments