Lash Lift – Algengar spurningar
Lash Lift er meðferð sem lyftir og mótar náttúruleg augnhár frá rót til að gera þau meira áberandi, sveigðari og fallega opna augnsvæðið. Meðferðin gefur náttúrulega og elegant niðurstöðu án þess að nota gerviaugnhár.
Niðurstaðan endist yfirleitt í 6–8 vikur, en það getur farið eftir vaxtarlotu augnháranna og hvernig er hugsað um þau eftir meðferð.
Oft er augnháralitun framkvæmd samhliða Lash Lift til að gera augnhárin dekkri, meira skilgreind og enn meira áberandi. Það gefur fallega heildarniðurstöðu.
Mælt er með að forðast vatn, gufu, svita og olíur fyrstu 24 klukkustundirnar eftir meðferð til að tryggja sem besta endingu og niðurstöðu.
Já, eftir fyrstu 24 klukkustundirnar má aftur nota maskara. Margir kjósa þó að sleppa honum þar sem augnhárin verða náttúrulega fallega lyft og áberandi. Mælt er með að þrífa hann af með því að nudda augnhárin uppá við í staðin fyrir að nudda þau niður.
Nei, meðferðin er almennt mjög þægileg og sársaukalaus. Þú liggur afslöppuð á meðan augnhárin eru mótuð og meðhöndluð.
Lash Lift tekur yfirleitt um 45 mínútur.
Lash Lift hentar flestum sem vilja fallegri og meira mótuð náttúruleg augnhár. Niðurstaðan getur þó verið mismunandi eftir lengd, þéttleika og ástandi augnháranna.
Yfirleitt er mælt með að bíða í um 6–8 vikur á milli meðferða svo náttúruleg vaxtarlota augnháranna fái að halda sér og niðurstaðan verði sem fallegust.
Hjá VA Snyrtistofu er lögð áhersla á fagmennsku, nákvæmni og náttúrulega fegurð. Markmiðið er alltaf að skapa fallega, mjúka og elegant niðurstöðu sem undirstrikar þín eigin augnhár.
0 comments