MICROBLADE

MICROBLADE

Microblading – Algengar spurningar

Microblading er hálf-varanleg meðferð þar sem örfín hárstrá eru teiknuð í efsta lag húðarinnar til að skapa fyllri og náttúrulegri augabrúnir. Útkoman er mjúk og líkist þínum eigin hárum.

Hjá VA Snyrtistofu eru notaðir Swiss Color litir sem eru valdir með það að markmið að ná fallegri, náttúrulegri og endingargóðri niðurstöðu. Litur og lögun eru alltaf sérsniðin að hverjum og einum.

Microblading endist yfirleitt í 1–3 ár, fer eftir húðgerð, lífsstíl og eftirmeðferð. Með tímanum mýkist liturinn smám saman og því er mælt með viðhaldi eftir þörfum. Með tímanum kólnar liturinn og því er gott að koma í lagfæringu og laga litinn.

Mælt er með að koma í skerpingu eða lagfæringu á 12–18 mánaða fresti til að viðhalda fallegri lögun og lit.

Já, litur og lögun eru alltaf valin með tilliti til húðtóns, andlitsforms, náttúrulegra augabrúna og þess útlits sem þú vilt ná. Markmiðið er alltaf að niðurstaðan verði sem náttúrulegust og fallegust.

Fyrsti tími tekur yfirleitt um 1,5 klukkustundir þar sem farið er í ráðgjöf, teikningu, litaval og sjálfa meðferðina. Viðhald eða endurkoma tekur oftast styttri tíma.

Flestir finna aðeins fyrir vægum óþægindum. Notað er deyfikrem til að gera meðferðina eins þægilega og mögulegt er.

Eftir meðferð geta augabrúnirnar verið dekkri fyrstu dagana. Létt flögnun getur komið fram og liturinn mýkist síðan jafnt og þétt. Full gróandi tekur yfirleitt um 4–6 vikur.

Forðast skal vatn, svita, gufu og virkar húðvörur á svæðinu fyrstu dagana samkvæmt eftirmeðferðarleiðbeiningum til að tryggja sem besta niðurstöðu.

Í sumum tilfellum geta einstaklingar sem eru í eða hafa farið í krabbameinsmeðferð sótt þessa meðferð. Það fer þó alltaf eftir aðstæðum hverju sinni og mikilvægt er að meta það út frá heilsufari, húðástandi og meðferðarsögu. Við leggjum áherslu á persónulega ráðgjöf og metum alltaf hvort meðferðin henti hverjum og einum.

Þar sem VA Snyrtistofa er vottuð af Sjúkratryggingum Íslands getur verið mögulegt að sækja um endurgreiðslu vegna meðferðarinnar þegar skilyrði eru uppfyllt. Við mælum með að hafa samband til að fá nánari upplýsingar um ferlið og hvaða gögn þarf að leggja fram með umsókn.

Hjá VA Snyrtistofu er lögð áhersla á nákvæmni, fagmennsku og náttúrulega fegurð. Markmiðið er alltaf að skapa fallega, mjúka og vandaða niðurstöðu sem hentar þér og þínum andlitsdráttum.

Bóka tíma

0 comments

Leave a comment