Eye Zone Conditioner

Eye Zone Conditioner

5.990 kr
Sale price  5.990 kr Regular price 
Skip to product information
Eye Zone Conditioner

Eye Zone Conditioner

5.990 kr
Sale price  5.990 kr Regular price 
Taxes included.
Upplýsingar
Hvað er Eye Zone Conditioner Serum?
Eye Zone Conditioner Serum er nærandi hárnæring fyrir bæði augnhár og augabrúnir sem hjálpar til við að styrkja, næra og viðhalda heilbrigðum hárum.

Serumið er hannað fyrir þá sem vilja falleg, vel snyrt og heilbrigð augnhár og augabrúnir á náttúrulegan hátt.

Formúlan er olíulaus og mild, án parabena, hormóna og ilmefna, og er 100% vegan vottað.

Flaskan inniheldur 8 ml.
Fyrir hvern er varan?
Eye Zone Conditioner Serum hentar öllum sem vilja styrkja augnhár og augabrúnir og halda þeim heilbrigðum og vel snyrtum.

Serumið er sérstaklega gott fyrir:

• Þau sem hafa farið í lash & brow lift
• Þau sem nota augnháralengingar
• Þau sem vilja styrkja augnhár og augabrúnir daglega

Þar sem serumið er olíulaust má einnig nota það á meðan þú ert með augnháralengingar.
Hvernig nota ég serumið?
Byrjaðu á því að hreinsa andlitið vel, til dæmis með Soft Cleansing Foam og Gentle Face Tonic.

Berðu síðan Eye Zone Conditioner Serum á augnhár og augabrúnir svo hársekkirnir geti auðveldlega tekið við næringunni.

Mælt er með að nota serumið 1–2 sinnum á dag til að ná sem bestum árangri.

Ef þú notar einnig Eyelash Growth Serum eða Eyebrow Enhancing Serum, berðu þau fyrst á og bíddu í nokkrar mínútur áður en þú notar Eye Zone Conditioner Serum.
Hverjir eru kostir þess að nota Eye Zone Serum?
Serumið er þróað úr hágæða hráefnum sem næra og styrkja hársekkina.

Með reglulegri notkun hjálpar það til við að:

• Styrkja augnhár og augabrúnir
• Gefa hárunum raka og næringu
• Styðja við heilbrigðan hárvöxt
• Láta augnhár og augabrúnir líta fyllri og glansandi út

Þetta getur einnig hjálpað til við að lengja líftíma háranna og bæta útlit þeirra.
Helstu innihaldsefni
Myristoyl Pentapeptide-17
Styður hárvöxt og styrkir augnhár og augabrúnir frá rót.

Panthenol & Hydrolyzed Collagen
Næra og styrkja hárin og hjálpa þeim að halda heilbrigðu útliti.

Sodium Hyaluronate
Gefur raka og hjálpar hárunum að halda sveigjanleika.

Arginine & Peptíð
Styðja við heilbrigða starfsemi hársekkja og styrkja hárin.

Þú gætir líka haft áhuga á...