Serum Foundation Light Neutral-Warm Rosy 02
Upplýsingar
Serum Foundation
Serum Foundation er léttur og rakagefandi farði með steinefnalitum sem veitir jafna og náttúrulega þekju án þess að stífla húðina.
Formúlan býður upp á létta til miðlungs þekju sem jafnar húðlitinn á meðan húðin heldur sinni náttúrulegu áferð og ljóma.
Hýalúrónsýra hjálpar til við að viðhalda raka í húðinni, á meðan E-vítamín og rauðþörungaseyði næra, styrkja og vernda húðina gegn ytri áreiti.
Útkoman er mjúk, ljómandi og heilbrigð húð með náttúrulegri áferð sem endist fallega allan daginn.
✨ Fyrir fullkomna áferð mælum við með að nota Foundation Brush 01 . Mjúku og þéttu vegan hárin dreifa farðanum jafnt yfir húðina og skapa slétta, náttúrulega og rákalausa áferð.
💛 Til að festa förðunina og lengja endinguna enn frekar mælum við einnig með Fix Setting Mist . Létt og rakagefandi setting sprey sem hjálpar farðanum að haldast ferskum, náttúrulegum og fallegum allan daginn.